Fara í efni

Reglur um dýrahald

Brynja leigufélag hefur sett reglur um dýrahald er tóku gildi þann 1. mars 2026. Voru reglurnar settar til að mæta breytingum á lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994 er varðar dýrahald í fjölbýlishúsi.

Nú geta leigjendur sótt um leyfi fyrir einum hundi eða einum ketti. Hundar verða að vera skráðir samkvæmt reglum viðkomandi sveitarfélags ásamt því að vera tryggðir og kettir þurfa að vera örmerktir.

Leigjendur eru hvattir til að kynna sér Reglur um dýrahald áður en sótt er um.

Til að sækja um leyfi fyrir dýri hafið samband við skrifstofu Brynju leigufélags.