Viðurkenning
Í lok október 2026 hlaut Brynja leigufélag viðurkenningu sem
framúrskarandi fyrirtæki 2026. Fyrirtæki þurfa að uppfylla
ströng skilyrði til að hljóta þessa viðurkenningu en öll eiga
þau það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sembyggja
rekstur sinn á sterkum stoðum sem efla allra hag.
Hlutverk Brynju er að kaupa, eiga og reka íbúðir fyrir öryrkja.
Þann 30. júní 2026 voru íbúðir í eigu Brynju orðnar 1.148 talsins
og hafi þeim fjölgað um 318 frá því í upphaf árs 2022. Þrátt
fyrir mikla fjölgun fasteigna Brynju þá heldur biðlisti félagsins
áfram að lengjast.
Í lok október 2026 var fjöldi umsækjenda á biðlista alls 686
samanborið við 606 umsækjendur í lok október 2025 og er
það fjölgun um 13% á milli ára.
Markmið Brynju er að halda áfram öflugu starfi sínu með því
að bjóða öryrkjum upp á hagkvæmt húsnæði og tryggja þeim
öruggt heimili til framtíðar.
Skilyrði greiningar Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2026
Erna Eiríksdóttir fjármálastjóri og Jónas Páll Jakobsson framkvæmdastjóri.