Fara í efni

Félags- og húsnæðismálaráðherra heimsótti Brynju leigufélag


Brynja leigufélag fékk nýverið heimsókn frá félags- og húsnæðis-
málaráðherra ásamt starfsfólki ráðuneytisins þar sem farið var yfir
starfsemi félagsins og rætt um stöðu og framtíð uppbyggingar á
húsnæði fyrir öryrkja.

Meginefni fundarins var nýtt frumvarp til laga um breytingar á
lögum um almennar íbúðir, svokölluð leigubremsa, og áhrif þess
á rekstur óhagnaðardrifinna leigufélaga. Á fundinum var rætt
um mikilvægi þess að tryggja stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrar-
umhverfi fyrir félög á borð við Brynju sem hafa það meginhlutverk
að bjóða öruggt og hagkvæmt húsnæði til langs tíma.

Fulltrúar Brynju kynntu ráðherra starfsemi félagsins, uppbyggingu
síðustu ára og þær áskoranir sem tengjast fjármögnun og rekstri
leiguíbúða fyrir öryrkja. Jafnframt var rætt um mikilvægi samstarfs
ríkis, sveitarfélaga og óhagnaðardrifinna leigufélaga við að mæta
vaxandi þörf fyrir aðgengilegt og öruggt húsnæði.

Brynja þakkar ráðherra og föruneyti hans fyrir góða heimsókn og málefnalegar umræður. Slíkt samtal er mikilvægt til að tryggja að lagaumhverfi og stuðningskerfi samfélagsins styðji áfram við upp-
byggingu og rekstur húsnæðis sem eykur lífsgæði og sjálfstæði
öryrkja um land allt.

Mynd frá vinstri: Sigþór Unnsteinn Hallfreðsson stjórnarformaður Brynju leigufélgas, Ragnar Þór Ingólfsson Félags- og húsnæðismálaráðherra, Jónas Páll Jakobsson framkvæmdastjóri Brynju leigufélags.